Eyrarrósin 2006
Eyrarrósin í ár kom í hlut LungA, listahátíðar ungs fólks, Austurlandi
og var afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 13. janúar.
Í umsögn dómnefndar segir: LungA er einkar litrík menningarhátíð ungs fólks í tengslum við listahátíðina Á seyði. Listrænn metnaður og afar fjölbreytt dagskrá með þátttöku innlendra sem erlendra listamanna dregur athygli að staðnum. Myndlist, tónlist, sirkus og útiviðburðir tvinna saman skemmtilega dagskrá, sem höfðar til fjölmenns hóps heimamanna og gesta.
Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiðar frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti viðurkenninguna og hún er jafnframt verndari Eyrarrósarinnar.
Þrjú verkefni höfðu áður verið valin úr hópi fjölmargra umsækjenda og voru þau öll kynnt sérstaklega á Bessastöðum. Hin verkefnin tvö eru Kórastefna við Mývatn og Jöklasýning á Höfn í Hornafirði. Hlutu þau 200 þúsund króna fjárstyrk hvort og flugmiða frá Flugfélagi Íslands.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri flutti ávarp við athöfnina.
Fyrir réttu ári féllu verðlaunin í skaut Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði en þá voru einnig tilnefnd verkefnin Aldrei fór ég suður; rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði og Listahátíðin á Seyði á Seyðisfirði.
Eyrarrósin á rætur sínar í því að fyrir um tveimur árum síðan gerðu Listahátíð í Reykjavík, Byggðarstofnun og Flugfélag Íslands með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni.
Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðarstofnunar.
Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir, söfn.
Verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðarstofnunnar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa.
Auglýsing um Eyrarrósina 2006.
