Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

2004

Setning Listahátíðar 2004

Setning Listahátíðar í Reykjavík 2004 verður í Listasafni Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur hátíðina.

Við setningu verður sýnt brot úr Íshljómi, einstakri kvikmynd Páls Steingrímssonar sem er óviðjafnanlegt sambland af vetrarríki og tónlist. Íslenski dansflokkurinn frumflytur verk eftir Katrínu Hall og undurfagur rússneskur kórsöngur mun hljóma þegar Karlakór st. Basil-dómkirkjunnar í Moskvu flytur þjóðlög og lög tónskálda rétttrúnaðarkirkjunnar.

Lesa meira
 

Susana Baca - söngkonan frá Perú

Baca er fyrsti tónlistarmaðurinn frá Perú sem hlotið hefur Grammy verðlaun og nýlega féllu henni í skaut hin eftirsóttu BBC verðlaun fyrir heimstónlist.

Lesa meira
 

Ísland-Írland -stórtónleikar í Laugardalshöll

Tveir fremstu tónlistarmenn Íslands og Írlands, tónskáldin Donal Lunny og Hilmar Örn Hilmarsson munu leiða stóran hóp tónlistarmanna í Laugardalshöll laugardaginn fyrir hvítasunnu.

Lesa meira
 

Brodsky kvartettinn - Sjón og Skólakór Kársness

Síðari tónleikar Brodsky kvartettsins verða með allt öðru sniði og þar kemur fram fjöldi íslenskra listamanna. Dagskráin eru byggð á Sjóns, Anna og skapsveiflurnar, og er Sjón sögumaður og Julian Nott höfundur tónlistar.

Lesa meira
 

Klezmer Nova -franskir djassarar

Galsi, gáfur, frumleiki og einlægni einkennir spilamennsku Klezmer Nova stuðboltanna frá París.

Lesa meira
 

Fantasy Island -alþjóðleg myndlistarsýning

Spennandi alþjóðleg stórsýning átta kunnra myndlistarmanna, fjögurra innlendra og fjögurra erlendra. verið áberandi á vettvangi samtímalistar undanfarin ár og jafnvel áratugi.

Lesa meira
 

Íslensk kvikmyndatónlist -Kasahópurinn

Hér fléttast saman flutningur Kasa hópsins á frábærum köflum úr heimi íslenskrar kvikmyndatónlistar auk valinna dæma úr tilheyrandi kvikmyndum.

Lesa meira
 

Brodsky kvartettinn -klassískir tónleikar

Á þrjátíu ára ferli hefur Brodsky kvartettinn komið víða við og er nú talinn einhver besti strengjakvartett heims. Með sínu nefi leikur hann klassík á borð við Beethoven og Shostakovich.

Lesa meira
 

Hugstolinn -kammerópera

Hugstolinn er kammerópera, goðsagnarleg ferð í norrænum tónum. Sýningin er smíð franska leikstjórans Janick Moisan í samvinnu við tónskáld frá Íslandi, Færeyjum, Finnlandi og Alaska.

Lesa meira
 

Pólstjörnur -tónleikar

Norðan frá Thule kemur grænlenski trommudansarinn Robert Pears og tekur þátt í einstöku tónlistarverkefni með tónlistarmönnum frá Belgíu, Kutuaq á Grænlandi og íslenska slagverksmanninum Pétri Grétarssyni.

Lesa meira
 

Kvöldstund með Jónasi - kór og einsöng

Jónas Ingimundarson er einn virtasti og vinsælasti tónlistarmaður landins. Í tilefni sextugsafmælis hans verður efnt til glæsilegra tónleika með Jónasi í Þjóðleikhúsinu.

Lesa meira
 

I Solisti Veneti -ítölsk klassísk hljómsveit

I Solisti Veneti er ein af betri klassísku hljómsveitum í Evrópu. Hún leikur eingöngu ítalska háklassík eins og hún gerist best eftir meistara á borð við Vivaldi, Tartini, Paganini, Rossini og Puccini.

Lesa meira
 

NCCP -miðjarðarhafsmúsík

NCCP stendur fyrir Nuova Compagnia di Canto Popolare, nýtur gríðarlegra vinsælda í Evrópu, Suður-Ameríku og víðar en einkum þó í sínu heimlandi, Ítalíu.

Lesa meira
 

Körper -Norðurlandafrumsýning frá Schaubühne

Norðurlandafrumsýning í Borgarleikhúsinu á víðfrægri sýningu Söshu Waltz sem er ein af leikhússtjórum hins virta Shaubühne í Berlín.

Lesa meira
 

Seamus Heaney og Liam O'Flynn

”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”.

Lesa meira
 

IBM og Glóð -tónlist og dans

“IBM – a User’s Manual” er samstarfsverkefni Jóhanns Jóhannssonar tónskálds, hinnar ört vaxandi dansstjörnu Ernu Ómarsdóttur og Eþos-strengjakvartettsins.

Lesa meira
 

Körper - Norðurlandafrumsýning frá Schaubühne

Norðurlandafrumsýning í Borgarleikhúsinu á víðfrægri sýningu Söshu Waltz sem er ein af leikhússtjórum hins virta Shaubühne í Berlín.

Lesa meira
 

Tómas R. og Jagúar -djassdans

Hljómsveitin Jagúar ásamt stórskotaliði íslensku sveiflunnar þeim Sigtryggi Baldurssyni, Sigurði Flosasyni, Óskari Guðjónssyni, Gísla Galdri, Lasse Lindgren, Kjartani Hákonarsyni og fleirum mynda fjórtán manna band og spilar úrval af tónlist hins margverðlaunaða Tómasar R. Einarssonar

Lesa meira
 

Clemente og Roni Horn -myndlistarsýning

Viðamikil einkasýning á verkum eins fremsta núlifandi málara heims; Ítalans Francesco Clemente opnar í Listasafni Reykjavíkur.

Lesa meira
 

Hibiki -japanskt dansleikhús

Sýning Sankai Juku hópsins á Hibiki undir stjórn Ushio Amagatsu, sem jafnframt er aðaldansari hópsins, hefur farið sigurför um heiminn.

Lesa meira
 

Olga Borodina - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Það er mikill fengur að fá hingað til lands eina allra eftirsóttustu mezzósópransöngkonu heims. Olga Borodina sem lengi var aðalstjarna Kirov-óperunnar í Rússlandi og syngur nú jafnt á Scala og Metropolitan heldur tvenna tónleika á Listahátíð í Reykjavík með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói.

Lesa meira
 

Guðný Guðmundsdóttir -afmælistónleikar

Guðný Guðmundsdóttir hefur á undanförnum þrjátíu árum verið leiðandi í tónlistarlífi landsins sem konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess sem hún hefur kennt nýrri kynslóð íslenskra fiðluleikara með afburða árangri.

Lesa meira
 

Acte -leiklestur

Einkar spennandi leiklestur á frönskum og belgískum leikritum. Í samvinnu við Compagnie La Barraca, Théâtre de l’Est Parisen, Théâtre Varia, Borgarleikhúsið og Listaháskóla Íslands.

Lesa meira
 

Tónlistartorg Listahátíðar í Kringlunni

Dagskrá Tónlistartorgs Listahátíðar í Kringlunni má sjá hér.

Lesa meira
 

Nýir raunveruleikar -finnsk samtímaljósmyndun

Finnsk samtímaljósmyndun hefur á undanförnum áratug notið mikillar alþjóðlegrar hylli og verið fremst í flokki Norðurlandanna á þeim vettvangi.

Lesa meira
 

Kvikmynd um Dieter Roth

Kvikmynd í fullri lengd um líf og starf hins heimsþekkta myndlistamanns Dieter Roth sem bjó og starfaði á Íslandi um árabil.

Lesa meira
 

Þrettándakvöld -Rustaveli þjóðleikhús Georgíu

Alla leið frá Tblisi í Georgíu koma einhverjir fremstu leikhúslistamenn heims og efna til “Þrettándakvölds” Shakespeares í Þjóðleikhúsileikhúsinu.

Lesa meira
 

Marc-André Hamelin -píanótónleikar

Fáir listamenn hafa fengið eins magnaða dóma og kanadíski píanóleikarinn Marc-André Hamelin sem verður með tvenna tónleika í Háskólabíói.

Lesa meira
 

Karlakór St. Basil dómkirkjunnar í Moskvu

Djúpir flauelsbassar og silkimjúkir tenórar eru lýsingarorð sem gjarnarn eru notuð yfir kór St. Basil dómkirkjunnar sem kemur alla leið frá Moskvu.

Lesa meira
 

Vestuport -áhættuatriði í miðbænum

Hið víðförla Vesturport verður með mikilfenglegt áhættuatriði í miðborginni sem ber heitið "Að dýfa sér fram af 15 metra byggingu".

Lesa meira
 

Litríkur laugardagur -fjölbreytt dagskrá

Margir skemmtilegir viðburðir setja svip sinn á borgarlífið laugardaginn 15.maí. Ganga niður Laugaveginn með leiðsögn arkitekts.

Lesa meira
 

Fágæti í Hljómskála -tónleikar

Stuttir tónleikar verða á tuttugu mínútna fresti lungann úr laugardeginum í Hljómskálanum. Fram kemur fjöldi afburða tónlistarmanna.

Lesa meira
 

Kaþarsis eftir Gabríelu -einkasýning

Listakonan Gabríela Friðriksdóttir er kunn fyrir hæðnislegan og einfeldningslegan ídealisma.

Lesa meira
 

Trúnaður -innsetning og uppákoma

Innsetningin og uppákoman Trúnaður eftir þá Magnús Sigurðarson og Ragnar Kjartansson, sem verður í Listasafni ASÍ.

Lesa meira
 

Kenjarnar eftir Goya -myndlistarsýning

Einn stærsti listviðburður Listahátíðar 2004 er án efa sýning á Kenjunum eftir einn merkasta meistara listasögunnar, Spánverjann Francisco de Goya.

Lesa meira
 

Þrettándakvöld - Rustaveli þjóðleikhús Georgíu

Alla leið frá Tblisi í Georgíu koma einhverjir fremstu leikhúslistamenn heims og efna til “Þrettándakvölds” Shakespeares í Þjóðleikhúsinu. Leikhússtjóri Rustaveli þjóðleikhússins, Robert Sturua, sem jafnframt er leikstjóri sýningarinnar, var valinn einn af fremstu Shakespeare leikstjórum allra tíma, af breskum gagnrýnendum.

Lesa meira
 

Í nærmynd -bandarísk samtímalist

Vestrænt neyslusamfélag er til umfjöllunar í stórbrotinni sýningu á bandarískri samtímalist í Listasafni Íslands þar sem fjölbreytt verk vekja áhorfandann rækilega til umhugsunar á kaldhæðinn og beinskeyttan hátt um samfélagið.

Lesa meira
 



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica