Beint í leiðarkerfi vefsins.
TÓNSPOR er heitið á nýrri þáttaröð í umsjón Jónasar Sen, sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld. Þættirnir eru sex og er hver þáttur helgaður einu pari af tónskáldi og danshöfundi, sem unnu tón- og dansverk sem frumflutt voru á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. Í þáttunum er fylgst með því hvernig verkin urðu til, frá fyrstu hugmynd til frumsýningar. Dagskrárgerð er í höndum Jóns Egils Bergþórssonar. Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og Listahátíðar í Reykjavík.
Tónspor 1. þáttur: Sigríður Soffía Níelsdóttir og Þórarinn Guðnason - HORFA
Tónspor 2. þáttur: Hildigunnur Rúnarsdóttir og Steinunn Ketilsdóttir - HORFA
Listahátíð , í samvinnu við Hönnunarmiðstöð, efnir til opinnar samkeppni meðal hönnuða og myndlistarmanna um veggspjald Listahátíðar í Reykjavík 2012. Þátttakendur hafa frjálsar hendur um útfærslu en hugmyndin er að hún veki tilfinningu fólks fyrir Listahátíð í Reykjavík sem haldin er árlega á vorin.
Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt í upptakti að Hönnunarmars, þann 20. mars 2012 og opnuð sýning á völdum tillögum við það tækifæri. Höfundur verðlaunatillögu hlýtur verðlaun að upphæð 500.000 krónur.
Nánari upplýsingar og samkeppnislýsing
Tillögum skal skilað undir dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 23. febrúar 2012.
Opin samkeppni um hönnun veggspjalds er nýbreytni hjá Listahátíð, en í yfir fjörutíu ára sögu hennar hefur fjöldi hönnuða og myndlistarmanna verið valinn til að hanna veggspjöld sem fangað hafa tíðarandann og sett svip sinn á borgina á vorin. Hafa þau verið með ýmsu móti og ýmist tengst viðburðum, listamönnum og verkum Listahátíðar eða verið sjálfstæð hönnun.
Lesa meira
Miðasalan á einleikstónleika rússneska píanóleikarans Arcadi Volodos sem fram fara
í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 20. maí 2012, rýkur af stað.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA
Arcadi Volodos er talinn einstakur meðal píanóleikara og þykja tækni hans og tjáning óviðjafnanleg. Hann sver sig í ætt við gömlu meistarana hvað varðar frelsi í leik og tónmyndun. Að margra mati virðist tækni hans engin takmörk sett og hann á jafn auðvelt með að spila á tilfinningastrengi með undursamlegum einfaldleika og næmni og að framkalla stórkostlegar flugeldasýningar.
Fjöldi fólks fylgdist með útiatriði á Austurvelli við upphaf Listahátíðar
Erna Ómarsdóttir og hópur listamanna sýndu á stóra sviði Þjóðleikhússins 20. og 21. maí
Daníel Bjarnason, Ben Frost og Krakársinfóníettan í Hörpu, Silfurbergi 4. júní
Ásamt karlakórnum Fóstbræðrum og Davíð Þór Jónssyni í Hörpu, Norðurljósum 28. maí
Pétur Gunnarsson og fleiri rithöfundar tóku á móti gestum á heimilum sínum 5. júní
Með fulltingi innlendra og erlendra tónlistarmanna í Hörpu, Norðurljósum 20. maí
Spænsk stuðsveit í Hörpu, Silfurbergi 27. maí
Hópur karldansara frá Slóvakíu sýndi verkið Opening Night í Borgarleikhúsinu 22. maí
Með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Peter Schrottner í Hörpu, Eldborg 21. maí
Goðsögnin Tony Allen og Stórsveit Samúels J. djömmuðu í Hörpu, Silfurbergi 1. júní
Kínverski dansflokkurinn sýndi verkið HAZE í Þjóðleikhúsinu 2. júní
Spænski fjöllistahópurinn ásamt fjölda íslenskra þátttakenda á Austurvelli 21. maí
Einsöngstónleikar í Hörpu, Eldborg 5. júní