Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2011
Hörður Áskelsson, Mótettukór Hallgrímskirkjug og Schola cantorum
Mynd 1 af 2
1 2

Flétta


ViðburðurinnHaukur-Tomasson-f-vef

Nýtt kór- og hljómsveitarverk eftir Hauk Tómasson í flutningi Schola cantorum, Mótettukórs Hallgrímskirkju og Kammersveitar Reykjavíkur

Stjórnandi: Hörður Áskelsson


„af jarðarinnar hálfu byrja allir dagar fallega“ Úr ljóðabókinni Splunkunýr dagur eftir Pétur Gunnarsson


FLÉTTA er samið fyrir tvo kóra Hallgrímskirkju, Mótettukórinn og Schola cantorum og sextán manna kammersveit. Textinn er samsettur úr ljóðum og ljóðabrotum nokkurra íslenskra skálda á ýmsum aldri, frá Snorra Hjartarsyni til Sjón. Flétta fjallar um ægifegurð náttúrunnar, tengsl okkar við hana og ábyrgð okkar á henni. Sex örstutt náttúruljóð eftir Sjón mynda einhvers konar rauðan þráð gegnum verkið, sungin af Schola cantorum og skiptast á við stærri kórkafla sungnum af Mótettukórnum. Ljóðin spanna allt frá lofsöng um vorið og yfir í ljótleika, auðn og eyðileggingu, og tónlistin frá voldugum kórköflum yfir í málmkennt skrap slagverkshljóðfæra. Um leið er verkið ferðalag gegnum árstíðirnar.

Haukur Tómasson tónskáld hefur meðal annars hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin, Bjartsýnisverðlaunin og Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. Tónlist eftir hann hefur ekki heyrst á Listahátíð síðan 1998 þegar Sigrún Eðvaldsdóttir frumflutti Fiðlukonsert hans. Kammersveit Reykjavíkur hefur staðið fyrir metnaðarfullu tónleikahaldi og útgáfustarfsemi allt frá árinu 1974. Schola Cantorum og Mótettukórinn hafa staðið undir mjög öflugu tónlistarstarfi í Hallgrímskirkju árum saman. Schola Cantorum var Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið 2006. Hörður Áskelsson hefur stjórnað kórunum frá upphafi og er meðal annars handhafi Íslensku bjartsýnisverðlaunanna, Íslensku tónlistarverðlaunanna og Menningarverðlauna DV.


1 Af jarðarinnar hálfu (Pétur Gunnarsson)
2 náttúruljóð i (Sjón)
3 Bezt eru vorin (Hannes Pétursson)
4 náttúruljóð ii (Sjón)
5 Helgisögn (Snorri Hjartarson)
6 náttúruljóð iii (Sjón)
7 Þögnuðuholt (Stefán Hörður Grímsson)

8 náttúruljóð iv (Sjón)
9 Vetur (Þorsteinn frá Hamri)
10 náttúruljóð v (Sjón)
11 Páskaliljur (Hannes Pétursson)
12 náttúruljóð vi (Sjón)
13 Sólhvörf (Sjón)


Listamenn

HAUKUR TÓMASSON er fæddur í Reykjavík 1960. Hann stundaði tónlistarnám í Reykjavík, Köln, Amsterdam og við Kaliforníuháskóla í San Diego. Meðal verka hans má nefna söngverk ýmiss konar, hljómsveitarverk, konserta og kammertónlist. Haukur hefur hlotið ýmsar viðurkenningar svo sem tvívegis verðlaun í tónverkasamkeppni RÚV, Bjartsýnisverðlaun Bröste 1996 og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir hljómsveitarverkið Ardente. Haukur fékk tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004 fyrir óperuna Fjórði söngur Guðrúnar. Verk hans Harpa hefur verið valið til flutnings við opnun tónlistarhússins í maímánuði.

Schola-Cantorum-f-vefKammerkórinn SCHOLA CANTORUM var stofnaður árið 1996 af stjórnanda kórsins, Herði Áskelssyni. Kórinn hefur jafnan verið mikilvirkur í frumflutningi tónverka eftir íslensk tónskáld auk flutnings á endurreisnar- og barokktónlist. Schola cantorum hefur gefið út tvo hljómdiska, Principium (1999) með tónlist 16. og 17. aldar og Heyr himna smiður (2001) sem geymir íslenska samtímatónlist. Einnig tók kórinn þátt í heildarútgáfu á verkum Jóns Leifs ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á vegum sænska útgáfufyrirtækisins BIS. Þá má geta samstarfs Schola cantorum við Björk á hljómdisknum Medúllu og við Sigur Rós í flutningi á Hrafnagaldri Óðins. Schola cantorum var útnefndur tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2006 og ári síðar var kórinn tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.

Motettukor-Hallgrimskirkju-f-vefMÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU hefur lengi verið meðal fremstu kóra Íslands. Frá stofnun kórsins árið 1982 hefur hann sungið á meira en 200 tónleikum undir stjórn Harðar Áskelssonar, sungið inn á fjölda hljómdiska og farið í margar tónleikaferðir. Efnisskrá kórsins spannar alla sögu kórtónlistar en þar má finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum. Þá hefur kórinn frumflutt fjölda íslenskra tónverka, m.a. Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson, Jólaóratóríu eftir John Speight og óratóríuna Cecelía eftir Áskel Másson. Í byrjun apríl 2011 flutti Mótettukórinn Jóhannesarpassíu Bachs ásamt alþjóðlegu barokksveitinni í Haag og einsöngvurum. Í október næstkomandi heldur kórinn í tónleikaferðalag til Austurríkis og Þýskalands.

Kammersveit-Reykjavikur-fvefKAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR var stofnuð árið 1974 og hefur frá upphafi verið mikilvægur brautryðjandi í flutningi bæði eldri og nýrri kammertónlistar á Íslandi. Auk reglulegra tónleika í höfuðborginni heldur Kammersveitin tónleika víða um land og á hátíðum erlendis, t.d. ferðaðist hún með Vladimir Ashkenazy um Belgíu og Rússland árið 2003. Kammersveitin hefur staðið fyrir íslenskum frumflutningi merkra erlendra verka eftir tónskáld á borð við Olivier Messiaen, Arnold Schönberg og Arvo Pärt. Auk þess hefur hún unnið náið með íslenskum tónskáldum, frumflutt fjölmörg tónverk þeirra, kynnt þau á tónleikaferðum erlendis og gefið út ótal geisladiska með íslenskum verkum. Kammersveit Reykjavíkur hefur einnig leikið klassísk verk inn á geisladiska og hlaut hún Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2004 fyrir upptöku á Brandenborgarkonsertum Johanns Sebastians Bachs, þar sem Jaap Schröder leiddi hljómsveitina. 

Að loknu framhaldsnámi í Düsseldorf í Þýskalandi var HÖRÐUR ÁSKELSSON ráðinn organisti við Hallgrímskirkju árið 1982. Síðsumars sama ár stofnaði hann Mótettukór Hallgrímskirkju. Með kórnum hefur hann flutt flestar helstu perlur kórbókmenntanna bæði með og án undirleiks. Þá hefur hann stjórnað frumflutningi margra verka fyrir kór og hljómsveit sem íslensk tónskáld hafa skrifað á undanförnum árum,  síðast óratóríuna Cecelía eftir Áskel Másson. Þá hefur Hörður gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs kirkjunnar, hann stóð að stofnun Listvinafélags Hallgrímskirkju haustið 1982 og stofnaði kammerkórinn Schola cantorum árið 1996. Hann er upphafsmaður og listrænn stjórnandi Kirkjulistahátíðar, sem haldin er annað hvert ár, og hinnar árlegu tónleikaraðar; Alþjóðlegt orgelsumar. Síðustu fimm ár hefur Hörður gegnt embætti Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar.







Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica