Solaris
Viðburður
Krakársinfóníettan flytur Solaris nýtt verk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason með þátttöku þeirra. Kvikmyndverk eftir Brian Eno og Nick Robertson. Einnig verða flutt verk eftir Henryk Gorecki og Krzysztof Penderecki
Í samstarfi við Unsound Festival í Kraká.
Tónlist fyrir Solaris er metnaðarfullt tónverk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason sem þeir flytja á Listahátíð ásamt Sinfóníettu Krakárborgar. Við tónlistina er sýnt kvikmyndaverk Brian Eno og Nick Robertson sem byggir á kvikmynd Tarkovskys, Solaris, frá árinu 1972. Tónverkið er samið í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá útgáfu skáldsögunnar Solaris eftir pólska rithöfundinn Stanislaw Lem. Það er samið fyrir strengja- og ásláttarleikara, gítara, rafhljóðfæri og breytt píanó þar sem hlutum eins og skrúfum og strokleðrum er komið fyrir milli strengja píanósins til að breyta hljómi þess. Ben Frost leikur á rafmagnsgítar sem hann keyrir í gegnum ýmsa hljóðeffekta og Daníel leikur á breytt píanó.
Kvikmyndaverkið, eftir þá Brian Eno og Nick Robertson, við tónlistina er órjúfanlegur hluti af þeirri heild sem verkið er. Það er unnið upp úr römmum úr kvikmynd Tarkovsky sem þeir tengja saman með morph tækni.
Music for Solaris var frumflutt á Unsound tónlistarhátíðinni í Kraká í október síðastliðnum og var einnig flutt í Lincoln Centre í New York 6. apríl 2011 á Unsound Festival New York. Hljóðritun af verkinu kemur síðar út hjá útgáfufyrirtækinu Bedroom Community. Þetta verkefni er styrkt af Australia Council for the Arts og pólsku ræðismannsskrifstofunni á Íslandi.
Á tónleikunum flytur Krakársinfóníettan einnig verkin Three pieces in old style eftir Henryk Gorecki og Chaconne in memoria del Giovanni Paolo II eftir Krzysztof Penderecki.
Vakin er athygli á því að sæti eru ónúmeruð á tónleikunum.
Hér f. neðan er brot úr heimildarmyndinni "In search of the Unsound" sem framleidd var af Playgroundmag.net í samstarfi við Unsound. Þar er m.a. viðtal við Ben Frost um Solaris og brot úr verkinu.
In Search of the Unsound, Part III from Playground // PlayTv on Vimeo.



Listamenn
Krakársinfóníettan
Krakársinfóníettan er einn af virtustu tónlistarhópum Evrópu. Hún varð til að frumkvæði ungra tónlistarmanna við Tónlistarháskólann í Kraká í Póllandi og hefur náð miklum árangri undir stjórn fiðluleikararans Robert Kabara. Sinfóníettan hefur einkum vakið athygli fyrir frábæra tækni en ekki síst frumleika og hefur átt í samstarfi við merk tónskáld og stjórnendur, til að mynda Krzysztof Penderecki, Antoni Wit, Jerzy Maksymiuk, Christoph Eschenbach, Lorin Maazel, Valery Gergiev og John Axelrod. Krakársinfóníettan hefur einnig margoft komið fram á Unsound tónlistarhátíðinni og flutt tónlist listamanna á borð við Stars of The Lid, Jóhann Jóhannsson og fleiri.
Ben Frost kemur frá Ástralíu en hefur verið búsettur á Íslandi síðastliðin 5 ár. Ben hefur gefið út tvær plötur hjá Bedroom Community, Theory Of Machines (2007) og By The Throat (2009), sem báðar hafa skipað honum sess meðal fremstu og frumlegustu tónlistarmanna samtímans.
Daníel Bjarnason hefur hlotið mikið lof fyrir fyrstu plötu sína Processions (2009), sem inniheldur, auk fleiri verka, samnefndan píanókonsert. Daníel er stofnandi og listrænn stjórnandi Kammersveitarinnar Ísafoldar og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir tónsmíðar sínar. Hann hefur útsett fyrir Ólöfu Arnalds og Hjaltalín meðal annarra og stjórnaði eftirminnilegum tónleikum Hjaltalín og kammersveitar á Listahátíð 2009.
Brian Eno og Nick Robertson
Brian Eno og Nick Robertson hófu fyrst samstarf árið 1997 þegar Ian Robertson gerði plötuumslag fyrir plötu Brian Eno, Drop. Síðan þá hafa þeir unnið saman að hugbúnaðarverkefni Enos sem nefnist 77 Million Paintings, sem og að ýmsum öðrum innsetningum og sýningum. Anastasia Afonin kom einnig að gerð hreyfimyndanna sem notaðar eru í myndverkinu Tónlist fyrir Solaris.
