Beint í leiðarkerfi vefsins.
Setningin í ár fór fram 20. maí í anddyri Hörpu, nýopnaðs tónlistar- og ráðstefnuhúss við höfnina í Reykjavík. Menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, setti hátíðina og stjórnandi Listahátiðar, Hrefna Haraldsdóttir bauð gesti velkomna. Fram komu Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson, Högni Egilsson og karlakórinn Fóstbræður og Skuggamyndir frá Býsans.
Einn fremsti óperusöngvari samtímans kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Lesa meira
Heimsþekktur spænskur fjöllistahópur sýnir útiatriði í miðborginni með þátttöku yfir 60 innlendra sjálfboðaliða. La Fura dels Baus er stórveldi í heimi sviðslistanna sem hefur sýnt fyrir milljónir áhorfenda um víða veröld.
Lesa meira
Tony Allen trommar ómótstæðilegt afróbít við íslenskan afrófunkjazz Samúels og félaga. „Ef til vill besti trommari sem til hefur verið.” Brian Eno
Lesa meira
Erna Ómarsdóttir og hópurinn skoða hrylling í gegnum dans, söng, tónlist og myndlist.
Lesa meira
Danshópurinn Les SlovaKs afar hátt skrifaður í nútímadansi í Evrópu og er skipaður fimm karldönsurum frá Slóvakíu sem búa og starfa í Belgíu.
Lesa meira
Á sýningunni í Listasafni Íslands verða 28 verk eftir Louise Bourgeois, einkum innsetningar eða „klefar“ og höggmyndir, en jafnframt málverk, teikningar og vefmyndir.
Lesa meira
Tomi Ungerer er margverðlaunaður teiknari og rithöfundur sem hefur gefið út yfir 140 bækur, allt frá eftirsóttum barnabókum til umdeildra fullorðinsbókmennta.
Lesa meira
Krakársinfóníettan flytur Solaris nýtt verk eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason með þátttöku þeirra. Kvikmyndverk eftir Brian Eno og Nick Robertson. Einnig verða flutt verk eftir Gorecki og Penderecki.
Lesa meira
Í myndlist Claus Carstensen birtist sterkur sögulegur og pólitískur skilningur sem skorar á áhorfandann og krefst athygli hans með hreinum krafti pensilskriftar, lita og samsetningar – viðfangsefnið oft ofbeldiskennt, óþægilegt og ófyrirgefanlegt. Carstensen kafar ofan í vitund okkar, vilja og nautnir.
Lesa meira
Framsækið dansleikhús frá Kína færir okkur magnþrungna sýningu sem andsvar við umhverfis- og efnahagskreppu heimsins.
Lesa meira
Tómas R. Einarsson og Matthías Hemstock frumflytja á Listahátíð lagaflokk eftir Tómas sem er saminn fyrir kontrabassa, slagverk, vatnshljóð og vídeó.
Lesa meira
Ólöf og Skúli líta á þennan viðburð sem einstakt tækifæri til fagna farsælu og áframhaldandi listrænu samstarfi sínu. Dagskráin mun því innihalda valin lög úr verkum beggja.
Lesa meira
Spænska stuðsveitin flytur kraftmikinn tónlistarkokteil sem hristur er saman úr flamenco, hiphopi, rúmbu, reggíi og danstónlist.
Lesa meira
Högni Egilsson hefur, í tilefni tónleikanna á Listahátíð, samið nýja tónlist ásamt píanóleikaranum Davíð Þór Jónssyni og hljóðstjóranum President Bongo; og munu þeir flytja hana í Norðurljósasal Hörpu ásamt karlakórnum Fóstbræðrum undir stjórn Árna Harðarsonar.
Lesa meira
Kammersveit Reykjavíkur, Schola cantorum og Móttettukór Hallgrímskirkju frumflytja verk eftir Hauk Tómasson samið við náttúruljóð íslenskra skálda.
Sópransöngkonan einstaka syngur ljóðaperlur eftir Schumann, Strauss og Grieg á einsöngstónleikum á Listahátíð. "Dásamleg sópranrödd sem hljómar eins og sjálft vorið" Gramophone.
Lesa meira
Sex karlar afhjúpa æðsta leyndarmál listarinnar. Spennandi sviðsverk eftir Gunnlaug Egilsson og Klúbbinn.
Lesa meira
Í tilefni 30 ára tónleikaafmælis Eddu Erlendsdóttur píanóleikara verður dagskrá í Hörpu í anda Vínarskólanna þar sem Edda vígir nýja Steinway flygil kammersals Hörpu, Kaldalóns, og leikur verk eftir Schubert, Liszt, Schönberg og Berg. Fyrir tónleikana flytur Arndís Björk Ásgeirsdóttir, dagskrárgerðarkona á tónlistardeild Rásar 1, fyrirlestur um feril Eddu og efnisskrána
Lesa meira
Á Listahátíð verður dans- og tónlistarveisla í Tjarnarbíói þar sem sex stutt dans- og tónverk verða frumflutt á einu kvöldi.
Lesa meira
Sýningin er nátengd útgáfu nýrrar bókar, Júní,enda byggir hvort tveggja á sumardagbók Hörpu frá Bæ á Höfðaströnd, myndverkum hennar og texta.
Lesa meira
Þrjár konur mæla sér mót í sólríkri stofu. Þær eru komnar um langan veg, norðan af Sléttu, úr Suðursveit og austan af Seyðisfirði.
Lesa meira
,,Ellefu ára gamall kvaddi ég mér hljóðs á ritvellinum með ritgerð um Reykjavík. Þetta var í Ljósberanum árið 1958. Síðan má segja að Reykjavík hafi verið minn vettvangur."
Lesa meira
,,Vinnustofuhjáleigan mín í túnjaðri Landakots var áður smíðaverkstæði og þar eru enn nokkur skrúfjárn."
Lesa meira
Sex listamenn frá tveimur löndum varpa nýju ljósi á Íslendingasögurnar með ljóðum, tónum og uppistandi.
Lesa meira
Liðnir svipir munu koma í stofuna og leita lags við að nota höfundinn sem sína málpípu.
Lesa meira
Listahátíð í Reykjavík og Háskóli Íslands standa fyrir fernum Háskólatónleikum á aldarafmæli Háskóla Íslands. Tónleikaröðin spannar allt afmælisárið og tvinnast inn í dagskrá Listahátíðar.
Lesa meira
Í tíu ár hefur Subfrau ögrað viðteknum norrænum hugmyndum um kynhlutverk. Nú er kominn tími á raunveruleikatékk.
Lesa meira
Þátttakendur í hverjum hópi ganga með heyrnartól um höfnina og fá um stund að týnast í sínu innra eyra.
Lesa meira
Viðfangsefni sýningarinnar eru listaverk sem afhjúpa bresti í viðteknum skilgreiningum á list og hlutverki hennar, verk sem kveikja heimspekilega umræðu og túlka má sem innlegg í hana.
Lesa meira
Magnaður leikhúsviðburður þar sem Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona blása hvert með sínum hætti lífi í glóðir hinnar táknrænu goðsögu um Fönixinn.
Lesa meira
Leikhúsmaðurinn makalausi Kristján Ingimarssonar býður á undarlegt kaffihús þar sem hver heimsókn varir ævina.
Skemmtilegt skuggaleikhús hlaðið tónum og töfrum fyrir alla fjölskylduna.
Lesa meira